









Síðast uppfært: Sunnudagur, 28. ágúst 2011 12:49 Skrifað af: Soley Mánudagur, 08. ágúst 2011 21:18
Hugræn atferlismeðferð nær til margvíslegra vandamála og sjálfstyrkingar. Markmiðin geta beinst að ýmsum þáttum s.s. TILFINNINGUM t.d. að draga úr kvíða, reiði eða þunglyndi; HUGSUNARHÆTTI t.d. að læra betri leiðir til að leysa vanda eða losa sig við niðurdrepandi hugsanir sem leiða til vanlíðanar; VENJUM t.d. að breyta matar- eða áfengisvenjum eða verða félagslega virkari; SAMSKIPTUM t.d. að draga úr samskiptavanda fólks; LÍKAMLEGUM eða læknisfræðilegum vandamálum t.d. að takast á við bak- eða höfuðverk eða hjálpa fólki til að fara að læknisráðum.
Síðast uppfært: Sunnudagur, 12. júní 2011 16:46 Skrifað af: Soley Mánudagur, 02. maí 2011 22:55
Búið er að framlengja ódýrasta skráningargjaldinu á Evrópuráðstefnu hugrænnar atferlismeðferðar til 1. ágúst nk. og er ráðstefnugjaldið fyrir Íslendinga nú aðeins 55 000 krónur fyrir meðlimi í Félagi um hugræna atferlismeðferð og 65 000 krónur fyrir þá sem ekki eru í félaginu. Ganga má í félagið á þessari heimasíðu.
Sérstakt tilboð fyrir LSH, Reykjalund og Reykjavíkurborg gildir einnig til 1. ágúst nk.
Skráning á ráðstefnuna hefur verið afar góð og hafa nú þegar um það bil 900 manns skráð sig. Það stefnir því í metþátttöku á ráðstefnunni! Misstu ekki af einstöku tækifæri til að sækja erindi hjá fjölda heimsþekktra fræðimanna og meðferðaraðila og taka þátt í skemmtidagskránni sem kynnt verður innan skamms!
Fyrir hönd stjórnar FHAM og skipulagsnefndar ráðstefnunnar,
Sóley Dröfn Davíðsdóttir, formaður FHAM.
Síðast uppfært: Laugardagur, 23. apríl 2011 10:53 Skrifað af: Soley Sunnudagur, 10. apríl 2011 22:20
Handbók og verkefnahefti um hugræna atferlismeðferð var að koma út á vegum geðteymis Reykjalundar til notkunar fyrir almenning og fagaðila. Handbókin er seld á göngudeild Reykjalundar og í Bóksölu stúdenta en hana er einnig að finna á veraldarvefnum www.ham.reykjalundur.is en þar má nálgast texta bókarinnar bæði á ritformi og hljóðskrám.






