Áfengisvandi

Hvað er áfengi?

Áfengi (etanól) er virkt efni - aðaláhrif þess á heilann eru að það bælir starfsemi miðtaugakerfisins. Þótt fólk geti drukkið mikið magn áfengis á skömmum tíma, þá vinnur líkaminn hægt úr því og skilur út sem svarar einum drykk á klukkustund.
Áfengir drykkir innihalda ekki allir sama magn af hreinu áfengi. Svipað magn af hreinu áfengi er í bjórdós, glasi af víni og einföldum sjúss.

Hvaða áhrif hefur áfengi?

Áhrif áfengis eru háð því hversu mikið er drukkið, á hve löngum tíma, fyrri reynsla neytandans af áfengi og aðstæðum við drykkjuna (eins og andlegri líðan ða því hvort aðrir eru til staðar). Sé áfengis neytt í hófi, njóta margir áhrifa þess. En þegar áfengismagnið í blóðnu eykst verða áhrifin sífellt neikvæðari og hamla eðlilegri virkni. Hugsanleg áhrif eru drafandi tal og minnistruflanir.

Endurtekin ofdrykkja í langan tíma hefur neikvæð áhrif þegar til lengdar lætur. Þessi varanlegu áhrif geta verið allt frá minniháttar veikindum eins og magabólgum upp í alvarleg veikindi eins og skorpulifur eða heilaskemmdir, og frá vægum andlegum og félagslegum afleiðingum eins og fjarvistum frá vinnu upp í alvarlegar afleiðingar eins og skilnað eða atvinnumissi. Áhættan á að fá alvarleg sjúkdóma sem leiða af drykkju eykst ef drykkjunni fylgja miklar reykingar.
Það sem meðal annar einkennir áfengisvandamál er að fólk fær aukið þol gagnvart áfengi og sumir verða háðir áfengi. Aukið þol þýðir að með síendurtekinni áfengisneyslu þarf neytandinn meira áfengismagn til þess að ná sömu áhrifum og áður fengust með minna magni. Einstaklingur sem hafa aukið þol sýna stundum aðeins fá merki ölvunar, þótt þeir hafi drukkið mikið magn áfengis.
Þeir sem drekka mikið reglulega geta auðveldlega orðið andlega og líkamlega háðir áfengi. Þeim sem eru andlega háðir áfengi finnst þeir haf knýjandi þörf fyrir það. Þeir neyta áfengis þrátt fyrir augljósar, óæskilegar afleiðingar þess.

Sumir verða andlega háðir áfengi og aðrir geta orðið líkamlega háiðr því, en oftast fer það saman. Þegar líkaminn hefur aðlagast áfenginu verður einsatklingurinn háður því. Ef hann hættir að drekka á þessu stigi getur hann fengið fráhvarfseinkenni áfengisneyslu. Þau geta verið alvarleg eins og til dæmis ofskynjanir, flog og sturlunareinkenni (delerium temens).